Beitukóngur
Beitukóngur (Buccinum undatum). Önnur íslensk nöfn eru ætikóngur og nákóngur.
Stærð: Fullvaxinn beitukóngur er venjulega 7–10 cm á hæð en stærsti lifandi kuðungur sem mældur hefur verið hér á landi var 15 cm hár. Breiddin er um 6/10 hlutar af hæðinni.
Lýsing: Beitukóngur er hvítur, gulur eða brúnn og stundum rauðleitur, með odddregna hyrnu. Skelin hefur gróft kaðalmynstur sem liggur í reglulegum, bugðóttum röðum þvert á vindingana. Síðasti vindingurinn hefur um það bil 12 slíkar raðir sem dofna við neðra borð vindingsins. Vindingar skeljarinnar eru 7 til 9 talsins. Munnopið er egglaga, ytri vörin er lítið eitt sveigð út og innri vörin myndar glansandi þykkingu yfir síðasta vindinginn. Neðst í munnopinu er renna sem öndunarpípa dýrsins liggur í. Lokan, sem hylur munnopið þegar dýrið dregur sig inn í skelina, er sporöskjulaga með baugamynstri. Þar sem beitukóngurinn lifir grunnt er skelin sjálf stundum grænleit eða rauðleit vegna þörunga sem vaxa inni í skelinni. Beitukóngur getur verið allbreytilegur að lögun og hafa sex ólík afbrigði beitukóngs fundist hér við land.
Lífshættir: Beitukóngurinn er einkynja. Æxlun á sér stað um miðjan vetur. Við hrygningu límir kvendýrið mörg egghulstur saman í klasa, á eitthvert hart undirlag á botni. Misjafnt er hversu mörg egghulstur eru í hverjum klasa, en stærstu klasar geta verið 30 cm í þvermál með meira en 500 egghulstur. Flest eggin í egghulstrinu verða fæða fyrir þá fáu kuðunga sem þroskast í ungviði. Aðeins 3–10 litlir kuðungar skríða fullþroskaðir úr hverju egghulstri eftir u.þ.b. tveggja mánaða þroskunartíma. Nýklakinn kuðungur líkist fullvöxnum kuðungi. Í fyrstu lifir hann á grunnum svæðum nálægt landi, en þegar hann stækkar og eldist færir hann sig út á meira dýpi. Beitukóngur finnst bæði á leir-, malar- og klapparbotni. Eins og hér við land er beitukóngur og víða á grunnsvæðum í Norður-Atlantshafi, með mest áberandi rándýrum. Fæða kuðungsins er fjölbreytt. Hann lifir mest á samlokum og burstaormum. Við veiðar beitir hann mismunandi aðferðum, allt eftir staðsetningu bráðarinnar. Beitukóngur lifir einnig að einhverju leyti á hræjum. Þar sem krossfiskur er að éta skeljar má oft sjá hóp af beitukóngum umhverfis að tína upp það sem fellur af borðum krossfisksins. Eins er ekki óalgengt að sjá beitukónga nærast á hræjum dýra sem liggja á botninum.

