- Fiskbókin
- /
- Eldisfiskar
- /
Regnbogasilungur
Regnbogasilungur eða regnbogaurriði (fræðiheiti Oncorhynchus mykiss) er laxfiskur. Náttúruleg heimkynni regnbogasilungs eru við vesturströnd Norður-Ameríku og er hann af sömu ættkvísl og kyrrahafslax. Á Íslandi fjölgar hann sér ekki út í náttúrunni.
Regnbogasilungur þolir meira hitasvið og þarf ekki eins hreint og súrefnisríkt vatn og urriði og bleikja. Regnbogasilung var dreift um alla Norður-Ameríku á nítjándu öld og var fluttur til Bretlands um 1880 til eldis í vötnum. Hann þótti skemmtilegri veiðifiskur en karpar og aborrar sem voru algengir í þessum vötnum.
Regnbogasilungur var seinna fluttur til annarra Evrópulanda, hann var fluttur til Noregs 1908 og til Íslands um 1950. Stofninum á Íslandi var eytt vegna nýrnaveiki en var fluttur inn aftur. Regnbogasilungur berst hingað einnig öðru hvoru í sjó og koma þeir fiskar sennilega úr fiskeldi í Færeyjum. Regnbogasilungur er notaður í fiskeldi en einnig er honum sleppt í vötn til sportveiða. Regnbogasilungur hrygnir á vorin og hrognin klekjast á haustin og því lifa seiðin ekki af veturinn á norðlægum slóðum og er regnbogasilungur því aðeins eldisfiskur í Evrópu. Hann er vinsæll í fiskeldi því hann vex hratt og er ódýr í eldi. Hann verður 25 cm langur eftir 2-3 ár og um 1 kg eftir 3-4 ár. Hængar verða kynþroska eins til tveggja ára gamlir og hrygnur tveggja til þriggja ára.