- Fiskbókin
- /
- Eldisfiskar
- /
Beitarfiskur – (Heklu) Borri
Beitarfiskur – Borri (Oreochromis niloticus), á ensku tilapia, hefur einnig verið kallaður Hekluborri, er nýleg tegund í fiskeldi hér á landi, var fluttur til Íslands frá Kanada 2008. Kjörhitastig borrans í eldi er 27 °C og ef hitastigið fer undir 19 °C þá hrakar honum hratt, hættir að taka til sín fóður, tímgast ekki og drepst við 12 °C. Borrinn lifir því ekki í Íslenskri náttúru. Borrinn er almennt þekktur fyrir að hafa fáa og fátíða sjúkdóma og er mjög harðger í eldi í samanburði við kaldvatnstegundir. Borrinn fjölgar sér árið um hring og nær sláturstærð á sex til átta mánuðum, til samanburðar er bleikjan 20-24 mánuði í eldi.
Beitarfiskur er mjög vel fallinn til eldis enda hefur tegundin notið mikilla vinsælda á síðustu árum. Fiskinum er stundum líkt við kjúkling og er þá nefndur ,,vatnakjúklingur”. Beitarfiskur er alæta, þ.e.a.s. nærist á jurtum, lífrænum leifum og dýrum. Hann getur náð markaðsstæð (500-600 g) á 6-8 mánuðum við kjöraðstæður fyrir vöxt (30-35 °C). Holdið er hvítt og stinnt og bragðið er hlutlaust sem gefur mikla möguleika í matreiðslu.