Eldisfiskar Krabbar & skeldýr Uppsjávarfiskar Botnfiskar

Uppskriftir

Um matreiðslu á makríl (af Freisting.is)

Makríllinn er feitur fiskur og ætti að kæla sem fyrst eftir að hann hefur verið keyptur og helst að borða hann sama dag. Hægt erað geyma makrílinn í frysti í ca. 3 mánuði og láta hann síðan þiðna í ísskáp fyrir notkun.
Einföld og fljótleg eldun á makríl er best. Það hentar betur að steikja eða grilla makrílinn en að sjóða hann.  Gott er að nota ávöxt við eldun eða hafa með, en það vinnur á móti olíunni í fisknum. Makríllinn hentar vel með austurlenskum keim, t.a.m. engifer, lime, kóríander og kryddi svo eitthvað sé nefnt.
Nýlega veiddur makríll er mjög stinnur, augun glær og spegilslétt og tálknin eru djúp rauð.  Ef makríll er orðinn of gamall, þá eru augun skýjuð og tálknin brúnleit.

Kennslumyndefni