Eldisfiskar Krabbar & skeldýr Uppsjávarfiskar Botnfiskar

Súrflök og bitar

Súrpækluð síldarflök eru verkuð fersk með hlutfalli saltpækils 14°Be (14% saltstyrkur) og ferskra síldarflaka ca. 0,9:1 í forsöltun og síðan ediksúrs saltpækils (11°Be (10,9%) með 3-4% ediksýru) í hlutfalli ca. 0,9:1 á móti síldarflökum í súrpæklun síðar. Fituinnihald síldar er gjarnan 10-15% en oftast er lágmarksfita oftast miðuð við 8%.

Helstu eigin-leikar afurða Súrpækluð síldarflök
Saltinnihald 10-12%
Rotvarnarefni Engin ef ediksýra og salt eru frátalin
Önnur efni Ediksýra og vatnsefnisperoxíð H2O2 ( eða K2O2)
Verkunareinkenni Hold síldar er talsvert mýkra en hold ferskrar síldar og er ekki stinnt.
Hún er mjög ljós, að mestu litlaus. Hráabragð er horfið en súr- og saltbragð er ráðandi