Eldisfiskar
Krabbar & skeldýr
Uppsjávarfiskar
Botnfiskar
- Fiskbókin
- /
- Uppsjávarfiskar
- /
- Síld
- /
- Afurðir og nýting
- /
- Söltuð
- /
Súrflök og bitar
Súrpækluð síldarflök eru verkuð fersk með hlutfalli saltpækils 14°Be (14% saltstyrkur) og ferskra síldarflaka ca. 0,9:1 í forsöltun og síðan ediksúrs saltpækils (11°Be (10,9%) með 3-4% ediksýru) í hlutfalli ca. 0,9:1 á móti síldarflökum í súrpæklun síðar. Fituinnihald síldar er gjarnan 10-15% en oftast er lágmarksfita oftast miðuð við 8%.
Helstu eigin-leikar afurða | Súrpækluð síldarflök |
Saltinnihald | 10-12% |
Rotvarnarefni | Engin ef ediksýra og salt eru frátalin |
Önnur efni | Ediksýra og vatnsefnisperoxíð H2O2 ( eða K2O2) |
Verkunareinkenni | Hold síldar er talsvert mýkra en hold ferskrar síldar og er ekki stinnt. Hún er mjög ljós, að mestu litlaus. Hráabragð er horfið en súr- og saltbragð er ráðandi |